Ef lífið er eins og einhver íþrótt er það dýfingar af bretti. Fæstir ná að átta sig á því að þeir eru í lausu lofti áður en þeir lenda. Flestir sem átta sig á því verða skelkaðir, baða út öllum öngum, hrópa: „Ég er að detta!“ og gefa svo mikla skvettu. Enn hefur engin almennileg skýring fundist á að til séu þeir sem tekst að gera þrefalda skrúfu og eitt frístæltrix á leiðinni niður, skera svo vatnsyfirborðið án þess að sjáist högg á vatni. En hinir geta huggað sig við að það er heldur enginn að horfa / þessir heyra ekki heldur klappað / þessir fá ekki heldur að stökkva aftur.
Dýfingar af bretti
02.4.2009
~ 1 mín