Það verður NÝR MÚR
NÝR MÚR mun rísa, mun rísa
NÝR MÚR fyrir þig
NÝR MÚR til að verja þig
NÝR MÚR til að halda þér
NÝR MÚR enga hnýsni
NÝR MÚR
Það verður STÓR MÚR
nógu STÓR MÚR
og nógu HÁR MÚR
NÝR HÁR MÚR til að halda þér
NÝR HÁR MÚR til að verja þig
NÝR STÓR MÚR og óþægilegar spurningar verða hérna megin
engin svör hinu megin
NÝR MÚR STÓR MÚR HÁR MÚR
utanum það sem verður inni
og það sem verður úti
Þú verður inni eða úti
Þú verður til þú verður söngur
sami söngurinn
en markhópar þínir afmarkaðri
sami fuglinn
fljúgandi,
flögrandi,
eirð þinni er borgið,
frjáls fugl
það verður HÁR MÚR
HÁR MÚR í mannúðarskyni
svo ekki þurfi að stýfa þig
Bara MÚR
SMÁ MÚR
til að kenna þér
nei til að sýna þér
nei til að hjálpa þér
nei til að halda þér
nei til að elska þig
til að elska þig
SMÁ MÚR
NÝR MÚR
HÁR MÚR
STÓR MÚR
því þú veist hvernig hann er
því skilyrðislaus ást er ekkert fyrir fullorðið fólk
því öllu frelsi fylgir nokkur
alvara
MÚR fyrir þig
MÚR því annars þyrfti að hafa í hótunum
MÚR því áður vissirðu aldrei í hvorn fótinn þú áttir að stíga
MÚR MÚR MÚR MÚR MÚR