Djúp­steikt lýðveldi

07.2.2017 ~ 0 mín

Nætur­vakt­inni er lokið. Hver er þing­full­trúi þeirra kjós­enda sem hafa á tilfinn­ing­unni að lýðveldið Ísland sé plat, hafi jafn­vel verið riggað upp í flýti, eins og djúp­steik­ingarpotti, lúgu í glugga og skilti sem tilkynnir að óbreytt fokheld jarð­hæð sé ekki lengur bara fokheld jarð­hæð heldur KFC-sjoppa, ætlað aðeins til að fylla út í umsókn­areyðu­blaðið að „erlendum mörk­uðum“? Er fólk í æðstu embættum að rugl­ast þegar það talar um ríkis­borg­ara lands­ins sem þegna, eða er það að tala af sér? Þessum spurn­ingum og fleirum verður ekki svarað fyrr en á morgun, úr þessu.