Tilbrigði við Turin-prófið

10.2.2017 ~ 0 mín

Í samfé­lagi fram­tíð­ar­innar verður gerður nákvæmur avatar af þér við 18 ára aldur. Móðir þín er látin eiga samskipti við bæði frum­mynd­ina, það er þig, og eftir­lík­ing­una og þarf að segja til um hvor er hvor. Ef hún sér ekki muninn eða rugl­ast á ykkur og segir að eftir­lík­ingin sé alvöru er þér komið fyrir katt­ar­nef en avat­ar­inn látinn taka yfir face­book og twitter-reikn­ing­ana þína, ásamt öðrum þáttum tilver­unnar. Hvorki móðir þín né aðrir verða látin vita hvor var hvor. Úrval óskhyggj­unnar gerir mann­lífið fegurra með hverri kynslóð.