Stærsta frétt dagsins er ekki sú að James Comey segir opinberlega og eiðsvarinn frá hinum mafíska stjórnunarstíl Trump, heldur að við erum 100 þúsund árum eldri en við héldum að við værum þar til í gær. Uppgröftur í Marokkó. Mannabein. Fólk af okkar tegund, Homo Sapiens, með andlit eins og við — þó ílengra heilabú, segja þeir — en þetta erum samt við, 100 þúsund árum áður en við vissum síðast af okkur. Sem var fyrir tæpum 200 þúsund árum, allt annars staðar og sunnar í Afríku. Marokkó, það er bara steinsnar frá Spáni. Það liggur beint við að líta svo á að syndafallið, skrefið úr aldingarðinum, hafi legið yfir Gíbraltarsund, frá Afríku til Evrópu.
Hundrað þúsund árum eldri en við héldum — það eru um 3.000 kynslóðir. Alls erum við þá, að því er við best vitum, um 10.000 kynslóða gömul. Frá gamla testamentinu til okkar eru rétt um 100 kynslóðir. 170 kynslóðir frá því að ritmál var fundið upp í Mesópótamíu. Sem er ekki neitt. Með falskri nákvæmni getum við sagt að manneskjur hafi eigrað um, getið börn og kennt þeim að eigra um, þannig koll af kolli, um alls 9.830 kynslóða skeið, áður en nokkrum datt í hug að skrifa hjá sér neitt af því sem gerðist.
Engin minnisblöð, bara orðrómur og aðdróttanir. Mafískir stjórnunarhættir.
Auðvitað er sennilegra að syndafallið sé saga af tilurð ritmálsins en ferðasaga: við lærðum ekki að skammast okkar fyrr en við fórum að skrifa þessi ósköp niður.
Kannski er ritmálið fyrst og fremst til marks um vaxandi narsissisma mannkyns — nei, það er ekki nóg að við segjum börnunum okkar frá þessu, þú veist að þau fara alltaf vitlaust með, börnin þeirra verða að heyra þetta líka, og börnin þeirra og langniðjar okkar allir — nú er talað um faraldur vegna samfélagsmiðla, en teygir vandinn sig ekki töluvert lengra aftur?
Kannski datt þrátt fyrir allt fjölda fólks þetta í hug gegnum tíðina en hafði vit á að þegja yfir því — eða aðrir höfðu vit á að þagga niður í viðkomandi. Ganga í málið. Þegar skellur loksins á með ritmáli er ekki auðveldlega aftur snúið.
Hundrað þúsund árum eldri. Hér sit ég og tel niður í fertugt. Átta kynslóðum eftir sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna.
Mér lánaðist að starfa í dag. Af þeim 120 bréfaklemmum sem pakkningin frá því í gær er sögð hafa innihaldið liggja tvær eftir ónýttar. Fleira er ekki um daginn að segja.