Mamma og pabbi eru í heimsókn. Við bardúsum hitt og þetta, flesta daga eitthvað sem gæti sætt tíðindum á bloggi, þannig lagað, en að telja það upp í annarra manna fríi er svolítið eins og að hengja upp klukku fyrir ofan barborð. Það gerir hér um bil enginn, því barinn og fríið eiga það sameiginlegt að gefa fólki frá skjól frá tímanum, eins og auðvitað kvöldin, næturnar, helgarnar, allur tíminn utan skrifstofutíma: hitt og þetta helgum við lífsnauðsyn þess að telja ekki. Ganga klukkur uppi á jökli?
Ég tel ekki dagana, einmitt núna, á ég við, en ég tel morgundaginn og veit af honum þegar í dag: hversu margir dagar sem liðu undanfarið (ógrynni) er nú dagur 366. Ef tímatalið heldur.
Meira kaffi. Veröldin þarf meira kaffi, hæfilegan glundroða, borð, stóla og bedda.