Þetta varð óreiðukenndur dagur sem einkenndist af óþörfum músarsmellum og einhvern veginn atvikaðist það, eitthvað olli því, að ég opnaði hlekk á vef Forbes.com.1 Til að lesa grein á Forbes.com þurfa gestir fyrst að mæna á tilvitnun í fimm sekúndur. Þeir taka tímann, hún birtist við hliðina á teljara sem telur niður á meðan þú lest: 5, 4, 3 … í þetta sinn var það Díana prinsessa. Díana prinsessa sagðist ekki fylgja reglum, samkvæmt Forbes, ekki leiða með höfðinu heldur hjartanu. Ég harkaði þessa tilvitnun af mér til að komast í greinina sjálfa, eða hvað maður kallar svona texta: ráð frá manni sem sagðist eitt sinn hafa starfað með Elon Musk, og dregið af því lærdóm um hvað þurfi til að ná árangri. Þetta las ég og get nú deilt með ykkur án þess að þið þurfið fyrst að komast fram hjá Díönu Prinsessu: Til að ná árangri þarf þrennt, sagði maðurinn sem eitt sinn starfaði með Musk: ástríðu, færni og eftirspurn. Ef maður sinnir af ástríðu því sem maður er fær í og til er markaður fyrir það sem úr verður, þá þarf maður ekki einu sinni að hugsa um pening, hann kemur af sjálfum sér — sem birtingarmynd þess gildis sem maður skapar öðrum.
Birtingarmynd þess gildis sem maður skapar öðrum.
Nýaldarspekin sem sveimaði í kringum mig sem barn snerist í reynd öll um þetta: pening og hvernig hann kemur bara ef maður hefur ekki of miklar áhyggjur af honum, hvernig hann syndir upp í hendurnar á þeim sem verðskulda hann, laun heimsins til þeirra sem kunna að njóta og gleðjast. Jesús á auðvitað þessa línu þarna um liljur vallarins, þið eruð nú meiri flónin, sagði hann, að hafa áhyggjur af þarnæstu máltíð, vitið þið ekki að heimurinn var skapaður af örlæti, að auðvitað er séð fyrir ykkur? 2
Þessi tilgáta, að það sé í besta falli gagnslaust og sennilega skaðlegt að hafa áhyggjur af morgundeginum hefur aldrei, mér vitandi, verið sannreynd í stýrðri rannsókn. Nýrra tilbrigðið, að þeim farnist best fjárhagslega sem ekki leggja sig eftir því að efnast, veit ég ekki til að hafi sloppið gegnum ritrýni í einu einasta fræðiriti. Að það sé ábatasamara að líta á sjálfan sig sem dansandi stjörnuryk en, segjum, óstöðugt hlé á milli rotnunarferla, er óstaðfest með öllu.
Örlæti — hvað er aftur nýja orðið yfir maníukast? Örlyndi, já. Suma daga virðist sennilegra að heimurinn sé upprunninn í örlyndiskasti en örlæti, að hvaða aðili sem stóð að uppátækinu hafi lent í massífri dýfu í kjölfarið. Blessaður geðhvarfasjúklingurinn sem skapaði heim á sex dögum þurfti svo að hvíla sig aðeins. 3 Sunnudagurinn langi, það er dagur múrmeldýrsins.4
Í öðrum fréttum þessa helgi var að salt jarðar hefur glatað nokkru af seltu sinni.
↑1 | Laugardagurinn (dagur 391) var síðri en föstudagurinn (392). Ég ætti að vita betur en monta mig af góðri lukku, svona á almannafæri — til er tvenns konar fólk í heiminum: fólk sem nýtur góðs af því að gleði þess sé sýnileg og fólk í vanskilum. |
---|---|
↑2 | Hávamál gysast að vitleysingnum sem sefur ekki fyrir áhyggjum, vaknar daginn eftir og kemst að því að allt er víl sem var. Búddismi eins og hann leggur sig snýst um að ekkert sé þess virði að hafa áhyggjur af því. Stóuspekingar, epikúringar — hvað eiga upphafsmenn allra þessara siðakerfa sameiginlegt? Þeir voru allir uppi löngu fyrir tíma húsnæðislána, námslána og skyldusparnaðar. |
↑3 | Lítur við löngu seinna og segir öllum að tjillaxa aðeins, maður, kallinn er mættur, í alvörunni, hey, slakið aðeins á, slakið á! Þið eruð svo tens, ég sagði kallinn er mættur! |
↑4 | Sunnudeginum (degi 390) lauk svona: ég stóð og horfði á Dísu, sem sneri í mig baki, krjúpandi á rúminu í röndóttum boxer-buxum og svörtum stuttermabol, með bókina Violence eftir Slavoj Žižek í höndunum, reiðubúin að slá bókinni í vegginn næst höfðalaginu ef hún yrði vör við fluguna sem hélt fyrir henni vöku. Þetta var spennandi sena sem varði nokkra stund og leit út fyrir að þetta gæti lánast þegar hver haldiði að hafi komið spígsporandi eftir rúmstokknum nema herbergiskóngulóin, sem við höfðum annars ákveðið að láta í friði því maður drepur ekki kóngulær og það er kalt úti en rúmstokkurinn, það er heldur langt gengið –! Ef við kynnum einhverja skilvirka og áreiðanlega aðferð til að láta kóngulóna koma flugunni fyrir kattarnef hefðu þetta mögulega verið gleðitíðindi, en þær gera þetta allt á sínum hraða, kóngulærnar, spinna sína vefi (ólíkt til dæmis liljum vallarins …) og bíða svo átekta, aðferð sem myndi ekki leysa vandann eins og hann blasti við okkur fyrir nóttina — svo að ég tók við bókinni, tældi langleggjaðra dýrið upp á bókarkjölinn og henti því fram af svölunum. Sjálfsagt hefur það kastað út þræði og gripið í bríkina á svölum nágrannans, skríður þar inn og birtist á öðrum rúmstokki þegar líður á haustið. Flugan, við vitum ekki hvað varð um fluguna, mögulega sætti hún færis þegar dyrnar stóðu opnar og stakk af, í það minnsta er nú næði. Svona fer þegar maður tekur til, þá sjást frávikin svo skýrt og manni birtast allar pöddurnar sem annars hefðu ekki sést og engan truflað. Sagði ég, við dræmar undirtektir. |