Þannig að

21.3.2020 ~ 1 mín

Á meðan ég get varla um annað hugsað en þessa veiru, og hvað sem af henni ætlar að leiða, færi ég mig á slóð­ina Þannig að punktur com.1

References
1 Viðbót löngu eftir birt­ingu, 20. maí 2020: með annarri slóð lang­aði mig að forða blogg­inu mínu frá því að verða undir­lagt af þessu eina viðfangs­efni, þegar ég sá fram á að það yrði ég þó sjálfur um einhverja hríð. En þegar frá leið og ég gerði mér grein fyrir að ég myndi óhjá­kvæmi­lega skrifa í fyrstu persónu, að skrif mín um pest­ina og kófið væru jafn bundin mér og annað sem ég læt frá mér, þá sneri ég aftur hingað. Eftir standa fjórar, fimm færslur á Þannig að.