Kaupmannaskólinn. Ég nenni ekki að fá á mig holskeflu af viðbrögðum frá nemendum kaupmannaskólans og ég vil heldur ekki raska því viðkvæma jafnvægi sem þetta hlýtur allt að hvíla á, vil ekki setja þetta úr skorðum, þetta vistkerfi, svo ég sé hvort ég kemst upp með að kalla hann kaupmannaskólann. Það er gangbraut milli kaupmannaskólans og verslunarmiðstöðvarinnar við hliðina á honum. Kringlunnar. Það hlýtur að vera óhætt að nefna Kringluna. Það er gangbraut þarna á milli. Ég keyri eftir þessari götu svotil daglega, á leið til vinnu, eins konar sveitaveg í borginni, það má finna sér leið framhjá stofnbrautunum að mestu og dóla þessa sveitavegi milli staða. Það hentar mér betur á því tiltekna tæki sem ég hef til ráðstöfunar, bíl sem heldur að hann sé bátur eða öfugt, segir oftar dugguduggudugg en brumm-brumm. Á þessari gangbraut eru alltaf nemendur á ferð, í Kringluna eða úr Kringlunni. Og ég hef aldrei held ég, aldrei á ævi minni, séð fólk fara yfir gangbraut í jafn mikilli fullvissu um rétt sinn til að stöðva umferð vélknúinna ökutækja. Ég hef reyndar sjaldan orðið vitni að jafn mikilli fullvissu fólks, sameiginlega, um réttmæti þess erindis sem þau eru að reka yfirleitt. En hvað þá yfir gangbraut. Ekkert þeirra lítur til hliða áður en þau stíga yfir götuna. Ekkert þeirra hægir á sér. Ég staðnæmist auðvitað, í hvert sinn, sit síðan og undrast þar til mér er óhætt að aka af stað. Þau vita nú þegar að þau munu erfa þennan heim. Og hafa ekki hugmynd um að þar með er ekki öll sagan sögð. Þetta er eins konar sakleysi. Eða því svipar til sakleysis. (Ef ég aðhyllist stjórnmálastefnu snýst hún um að einmitt svona megi allir ganga yfir götu.)
Réttmæti þess að ganga yfir götu
06.2.2021
~ 1 mín