Réttur leigj­enda í 316 og hálft ár

23.11.2021 ~ 4 mín

„Vér Frið­rik hinn fjórði o.s.frv. gerum kunnugt:

Að þar eð vér ógjarna höfum orðið þess áskynja, að vorum kæru og trúu Íslands búum sé misboðið með álögum, bæði af húsbændum þeirra og öðrum sem hafa jarðir vorar að léni …“

– Það er að segja: yfir­völdum barst það til eyrna að eigendur og umsjón­ar­menn fast­eigna á Íslandi misbjóði leigj­endum sínum með gjald­töku umfram það sem rétt­látt gæti talist. Þess vegna:

„… þá höfum vér af konung­legri einka­náð, og til að veita téðum þegnum vorum lið og vernd laga og réttar, allra náðug­ast látið gera um þetta eftir­fylgj­andi tilskipun öllum hlut­að­eig­endum til ávís­unar og eftirbreytni.“

– voru sett lög:

„1. Er hérmeð alvar­lega bannað öllum húsbændum, og þeim sem hafa kynnu umboð yfir nokkru af fast­eignum vorum eða jörðum, að leggja á bændur þeirra neinar nýar álögur, framyfir það sem á jörð­unum hefir legið frá alda öðli; skulu þeir sem slíkt gera sekir við konung um þriðj­ung af því sem hinar nýu álögur verða metnar.“

Leigu má ekki hækka. Punktur.

„2. skulu allir húsbændur skyldir að gefa bændum sínum bygg­ing­ar­bréf; skulu þar tilgreindir allir þeir skil­málar sem þeir verða ásáttir um við bónd­ann, og er bóndi ekki skyldur að gjalda eða gera neitt það, sem ekki er tiltekið í byggingarbréfinu;“

Leigu­samn­ingar skulu vera skrif­legir og engin gjald­taka má eiga sér stað sem ekki er getið í samningi.

„3. allir húsbændur skulu gefa bændum sínum skil­merki­legt skrifað kvitt­un­ar­bréf fyrir eftir­gjaldi ábúð­ar­jarða þeirra, í hvert sinn sem þeir gjalda nokkuð eftir þær. Þeir sem sýna undandrátt í þessu eða mótþróa, skulu hafa fyrir­gert því sem þeir kynnu að eiga eftir­stand­andi hjá bóndanum.“

Leigj­endur skulu fá kvittun fyrir hverja greiðslu á leigu.

„4. Enginn húsbóndi má héðan af dirf­ast að taka leigu af dauðum gripum, fremur en lögin leyfa; svo að skil­málar þeir sem stríða gegn þessu og bónd­inn kynni að vera þving­aður til með fortölum eða mynd­ug­leika, skulu að fullu og öllu ógildir, og skulu húsbændur sjálfir skuld­bundnir til að bæta upp kvígildis kýrnar, þegar þær eldast um of, eða deyja af einhverjum þeim tilfellum, sem lögin ekki bjóða leiguliða að ábyrgjast;“

Leigu­sali skal annast viðhald eign­ar­innar, án viðbótar gjald­töku frá leigj­anda. Hafi slíks gjalds verið kraf­ist til þessa fellur er innheimta þess óheimil héðan í frá.

„5. Enginn bóndi skal skyldur að flytja leigur lengri veg heim til húsbónd­ans en 2 dagleiðir;“

Auðvelt skal vera að inna greiðsl­una af hendi. Og síðast en ekki síst:

„6. Enginn húsbóndi, hvorki þeir sem yfir vora fast­eign eru settir, andlegrar eða verald­legrar stéttar, má burt­rýma nokkrum bónda frá jörðu, sem hann eitt sinni hefir bygt honum, á meðan bónd­inn situr hana löglega, og geldur eftir hana það sem frá alda öðli hefur goldið verið og með réttu á að gjalda.“

– Leigu­sali getur ekki sagt upp samn­ingi við leigj­anda eða vísað honum burt úr fast­eign svo lengi sem leigj­andi stendur í skilum. Leigj­andi má annars búa þar sem hann býr, sama hvað.

Þetta var árið 1705. Tilskip­unin er dagsett 15. maí það ár, gefin út á dönsku, undir titl­inum Foror­dn­ing om adsk­illige Misbru­gers Afskaf­felse udi Island eða Tilskipun um afnám ýmissar misnotk­unar á Íslandi. Íslenska þýðingin er frá árinu 1840, úr riti Jóns Jóns­sonar, dómara í Lands­yf­ir­rétti, Hugvekja um þing­lýs­ingar, jarða­kaup, veðsetn­ingar og peninga­brúkun á Íslandi (bls. 112).

Tæpum 100 árum eftir að tilskip­unin kom út skil­aði amtmaður grein­ar­gerð, frá Íslandi til Kaup­manna­hafnar, um fylgni við tilskip­anir konungs, og segir frá því hvernig eigendur koma sér fram­hjá þess­ari tilskipun með vafa­sömum ákvæðum í samn­ingum. Algengt væri til dæmis að í leigu­skil­mála væri bætt fyrir­vörum á við „svo lengi sem viðkom­andi aðilum hentar“. Þannig tryggðu leigu­salar sér, þvert á ásetn­ing yfir­valda, svig­rúm til geðþótta­ákvarð­ana, á kostnað leigjenda.

Það var danskur amtmaður sem kom þess­ari athuga­semd á fram­færi, Ludvig Erich­sen, 1802. Fyrsti íslenski amtmað­ur­inn, Magnús Gísla­son, hafði það eitt við tilskipun konungs að athuga, hálfri öld áður, að fyrst leigu­salar mættu ekki gera leigj­endur sína heim­il­is­lausa þegar þeim hent­aði skyldu leigj­endur ekki heldur mega flytja þegar þeim sýndist.

Þannig berj­ast Leigj­enda­sam­tökin nú fyrir rétt­indum sem reynt var að festa í sessi fyrir 316 og hálfu ári síðan. Ég veit ekki hver urðu afdrift tilskip­un­ar­innar frá 1705, tækni­lega, hvort hún er enn í gildi, hefur verið sópað burt í seinni tíma tiltektum eða hvort það á hrein­lega eftir að láta á það reyna fyrir dómi. En fyrst Alþingi virð­ist hafa kosið að halda aðeins einni einustu grein Norsku laga enn í gildi, það er Norsku laga Kristjáns V, frá árinu 1687, og það er greinin um rétt húseig­enda til að kasta óskil­vísum leigj­endum út, „láta ryðja húsið“, þá virð­ist ekki galið að vita líka af rétt­ar­bót­inni sem var gerð, eða reynt að gera, átján árum síðar.