Megnið af mannlegu athæfi snýst um sjúkdómavarnir. Í hvert sinn sem við nærumst, sem við gerum flest nokkrum sinnum á dag, er það til að forða hungri. Sama á við um eldamennskuna sem tilheyrir næringunni, innkaupin og hvaða tekjuöflun sem þarf til að standa undir þessu markmiði, máltíðinni. Að fara í sturtu eða bað eru siðir sem við tókum upp á þegar hreinlæti reyndist þarft til að halda sýklum í skefjum. Svo ekki sé minnst á að ryksuga, sópa, þurrka af, þrif almennt. Líkamsrækt og íþróttir eru allar upphaflega hugsaðar til að halda betri heilsu lengur en ella. Sama á við um útivist og ýmislegt fleira sem fólk gerir sér til dægradvalar. Klæðnaður snýst um sjúkdómavarnir, sérstaklega hér á kaldari hliðum jarðar, líkt og það að búa í húsum og öll vinnan sem þeim tilheyrir: að reisa þau, að kynda þau, að viðhalda þeim. Og að hvílast á milli anna, hanga í sófa, sofa í rúmi, það er lífsnauðsynlegt líka, það eru líka sjúkdómavarnir. Þannig mætti áfram telja. Þau örfáu athæfi sem ekki snúast um sjúkdómavarnir eru það sem kallast menning og afþreying: listir, skemmtanir, bókmenntir. Það getur allt á einn eða annan veg talist lífsnauðsynlegt líka en ekki á jafn beinan og brýnan máta. Þú getur fastað í dag og á morgun en ef þú borðar ekkert í mánuð þá deyrðu. Þú getur gengið um klæðlaus á meðan vel viðrar en ef þú ferð allra leiða þinna án fatnaðar gegnum næsta vetur þá deyrðu. Þú getur vakað þessa nótt og næstu en ef þú heldur því áfram mikið lengur en viku þá deyrðu. Þó að þú þrífir hvorki þig né híbýli þín þetta árið og næsta árið þá lifirðu það sennilega af, en fjölgar miðum þínum í örverulottóinu, lífslíkur okkar myndu dragast saman ef við gerðum það öll í einu og við myndum að jafnaði deyja fyrr.
Af þessu mætti ætla að allt þetta gerðum við í miklu dauðans ofboði – hrópuðum til himna í hvert sinn sem við reimum á okkur skóna, fórnuðum höndum við hverja máltíð, hámuðum hana í okkur, fegin að sleppa lifandi nokkrar klukkustundir enn. En þannig er það ekki. Því okkur er það tamt að gera dygð úr neyð. Að velja hvað við borðum, gera okkur leik úr matreiðslunni, njóta máltíðarinnar. Velja föt af kostgæfni, skoða þau í spegli, láta okkur líða vel í þeim. Njóta okkar. Statt og stöðugt, í gegnum daginn, erum við að finna fleti á að njóta þess að varna lífshættulegum sjúkdómum, slá dauðanum á frest.
Það er allt og sumt. Við höldum dauðanum ekki varanlega í skefjum, við sláum honum aðeins á frest, svo lengi sem okkur er það fært. Til að njóta þess að halda áfram að gera einmitt það, finna fleti á að gera okkur það að leik.
Mannleg tilvera er fáránleg en þetta er eitthvert kjarnaatriði í því sem má kalla mannsandann: að finna hversdagslega ánægju í því sem væri alveg líka hægt að gera í angist og dauðans ofboði.
Og það er meðal annars þess vegna sem það er eins og við séum að brjóta á einhverju verulega djúpstæðu þegar við ákveðum, andspænis einni nýrri hættu, sem við gætum í sama skilningi sigrast á – ekki fyrir fullt og allt, ekki í eitt skipti fyrir öll, heldur dag fyrir dag, skref fyrir skref – að þá skulum við allt í einu ákveða: nei, nú er nóg komið. Hingað og ekki lengra. Þessari hættu höldum við ekki í skefjum, það væri of langt gengið, hún verður bara að fá að hafa sinn gang og salla niður fólk, því ég nenni ekki meir. Ég ætla að halda áfram að njóta matarins, njóta fatnaðarins, njóta bílsins míns og hússins og handþvottarins og sturtunnar og vítamínanna sem ég tek og líkamsræktarinnar sem ég stunda og heilsudrykkjanna, og alls hins sem ég ver dögunum í að gera til að halda heilsu aðeins lengur, forða sjúkdómum og fresta dauða mínum, nú ætla ég að fá að halda því öllu áfram í friði án þess að gera mér þetta ómak. Að setja upp grímu, bæta loftræstingu, virða fjarlægð, opna glugga. Hvað það væri. Andspænis þessum veikindum, þessari birtingarmynd dauðans neita ég, og við öll, að gera hætishót.
Það passar ekki. Ekki sem grundvallarákvörðun samfélags. Það er eitthvað ómennskt við hana. Ekki það að nenna ekki, við eigum öll okkar daga. Heldur að taka höndum saman um það sem grundvallaratriði. Boðorðið: Þú skalt ekki nenna þessu. Eða yfirlýsingin, að standa upp frá borði í mótmælaskyni, segja einum rómi: Ekkert okkar nennir þessu. Sameinuð nennum við þessu ekki. Sundruð nennum við þessu ekki heldur. Og ganga svo út. Það stemmir ekki.