Er þetta skógur eða er bara allt fullt af trjám?

26.1.2023 ~ 4 mín

Veru­leik­inn heldur áfram að vera klof­inn hér við tölvu­skjá­inn minn. Eða svona. Annars vegar allt fólkið sem talar um „í Covid“ í þátíð og meinar tímann þegar stjórn­völd brugð­ust við faraldr­inum, árin 2020 og 2021. Þau segja líka „eftir Covid“ og eiga þá við tímann eftir að stjórn­völdu hættu að bregð­ast við og fólk tók að deyja úr Covid. Þannig dóu fáir úr Covid í Covid, en margir eftir Covid. Og nú löngu eftir Covid er haft eftir full­trúa Heilsu­gæsl­unnar í Vísi: „Það er bara mjög mikið af pestum í gangi og mjög mikið af Covid þannig að við erum að hvetja fólk til að koma ef það eru meira en fjórir mánuðir liðnir frá síðustu sprautu.“ Eftir Covid er fólk yfir sextugu hvatt til að þiggja þrjár bólu­setn­ingar á ári, að óbreyttu. Gegn Covid. Til að deyja ekki.

Prest­ur­inn í Bretlandi

Hins vegar, á Twitter, blasir við mér heim­ur­inn þar sem þetta ástand er ekki kallað „eftir Covid“, og spurn­ingin hvort faraldur er faraldur er ekki talin póli­tísk eða spurn­ing um stemn­ingu, heldur faralds­fræði­leg. Samkvæmt faralds­fræð­ing­unum er enn faraldur. Breski prest­ur­inn sem kallar sig kríu beinir sjónum sínum að skólum í dag: „There is no other const­antly super­sprea­ding environment like a school. Nothing.“ – Ekkert stuðlar jafn duglega að ofur­dreif­ingu veirunnar og skólar. Ekkert. Undir þessu tísti láta foreldrar í sér heyra, ensku­mæl­andi, sem enn halda því börnum sínum heima. „Mine is home too. I struggle with guilt about the isolation – but she’s old enough to see that somet­hing sini­ster is going on in society,“ segir móðir að nafni Kate, hún haldi dóttur sinni enn heima frekar en senda hana í skól­ann og huggi sig með því að minna sig á að sú ákvörðun sé lang­tíma­fjár­fest­ing í heil­brigðum heila og fullri getu til sjálf­stæðis og auðugs lífs í framtíðinni.

Bráða­lækn­ir­inn í Ástralíu

Dr. David Berger, bráða­læknir í Ástr­alíu, deilir færslu manns að nafni Russell. Móðir Russells lést á dögunum og verður jarð­sungin í næstu viku. „Went in with infection, died with covid,“ skrifar hann – var lögð inn með sýkingu, dó með Covid. „It’s not OK“, skrifar Berger við færsl­una, „to infect 22 year olds, 52 year olds or 92 year olds who are in hospital with COVID and kill them. I can’t believe we have to protest this shit. I can’t believe doctors aren’t stand­ing up en masse and saying this is not accepta­ble.“ Á twitter kallar Berger sig aBsuR­diSTe cROnickLeR, við gætum þýtt það sem annála­rit­ara fáránleikans.

Heim­spek­ing­ur­inn í Svíþjóð

Maarten Steen­hagen, heim­spek­ingur við Uppsala háskóla skrifar: „Why covid keeps bother­ing me?“ – Hvers vegna Covid heldur áfram að angra mig? „Well, if we accept this level of preventa­ble damage and suffer­ing as a society, then what more will we shrug off in the near future?“ – Ef við, sem samfé­lag, föll­umst á þetta ónauð­syn­lega tjón og þján­ingu, hverju öðru munum við þá yppta öxlum yfir í náinni fram­tíð? „Peop­le’s acti­ons now are a litmus test for how they’ll deal with societal collapse due to climate change“ – Breytni fólks hér og nú eru próf­steinn á hvernig það mun bregð­ast við hruni samfé­laga vegna loftslagsbreytinga.

Salem um vinstrið

Mann­eskja sem kallar sig salem á twitter, og er fötluð samkvæmt lýsingu í síðu­haus, skrifar: „interest­ing how left­ists under­stand the power of indi­viduals when they’re call­ing for soli­da­rity with strikers, but when it comes to covid they’re sudd­enly like “stop expect­ing indi­viduals to do anything about systemic problems“ – salem er með öðrum orðum á meðal þeirra sem þykir einkenni­legt hversu fálátt vinstrið er um farald­ur­inn, og hversu greið­lega stór hluti þess samþykkti að skil­greina vand­ann sem einstak­lings­bundið viðfangs­efni frekar en samfélagslegt.

Faralds­fræð­ing­ur­inn í The Nation

Og Gregg Gonsal­ves, dósent í faralds­fræði við lýðheilsu­skóla Yale-háskóla deilir eigin grein, sem birt­ist í tíma­rit­inu The Nation nú í dag – The Nation er einn rótgrón­asti vinstrimið­ill Banda­ríkj­anna, hefur komið út reglu­bundið frá miðri 19. öld. Yfir­skrift greinar Gonsal­ves er While They “Have the Tools,” We Are Still Suffer­ing and Dying in Our Thousands. Í grein­inni vísar Gonsal­ves meðal annars til þeirra sótt­varna­ráð­staf­ana sem ráða­menn og auðkýf­ingar beita til að vernda sjálf sig, og birt­ust meðal annars á efna­hags­ráð­stefn­unni í Davos fyrr í þessum mánuði, á sama tíma og þeim skila­boðum er haldið að almenn­ingi að farald­ur­inn sé liðinn hjá og/eða ekkert hægt að gera í honum héðan af.

Ég deili þessu ekki í von um að sann­færa nokkra mann­eskju um eitt né neitt – ég er bara að æfa fing­urna og hugann og samræmið á milli þeirra, held þessu til haga fyrir sjálfan mig, við erum öll, eins og bráða­lækn­ir­inn í Ástr­alíu, annála­rit­arar fárán­leik­ans. „Eftir Covid“ er tilbún­ingur. „Eftir sann­leik­ann“, hins vegar, post-truth, allir hættu að tala um það ástand þegar Banda­ríkin skiptu um forseta, en ég er ekki viss um að sann­leik­ur­inn hafi lokið endur­hæf­ingu jafn skjótt. Eða endur­lífgun, hvort var það?

Tveir heimar. Í öðrum er heims­far­aldur. Í hinum er bara „mjög mikið af Covid“. Í öðrum er tilefni til að huga að grímum, loftræst­ingu og öðrum ráðum, til viðbótar við bólu­setn­ingar, til að færri veikist og deyi. Í hinum er vand­inn, eftir bólu­setn­ingu, vandi þeirra veiku, og þó einkum vandi þeirra dauðu, og þar með enginn vandi yfir­leitt, því dauðir kvabba ekki yfir neinu.

Fimmtu­dagur. Af stað.