Nýr hnappur

16.2.2023 ~ 2 mín

Gestir Húss geta nú valið um dark mode, sem er grunnstill­ing, þá er þetta blogg án farald­urs, púff, það er hreint eins og hann hafi aldreið orðið, eða light mode, sem birtir allar færslur, að umfjöllun um farald­ur­inn meðtalinni.

Hnapp­ur­inn sem stýrir þessu, dýrasti hnappur Húss til þessa, er þannig sérsam­inn til að koma til móts við þarfir ólíkra lesenda í brotnum heimi. Þjón­ustu­lund er orðið sem ég var að leita að … lesand­inn hefur alltaf rétt fyrir sér?

Á forsíðu­yf­ir­lit­inu birt­ist þessi færsla hér þannig aðeins þeim lesendum sem kjósa heldur að draga frá en fyrir.


Síðasta þriðju­dag, það var á Valentínus­ar­dag, birt­ust uppfærðar tölur um dauðs­föll ársins 2022 á vefnum covid.is. Stað­festum andlátum vegna Covid-19 fjölg­aði þar með úr 199 í 211. Tólf hafa samkvæmt því látist í desem­ber, árið á nú að heita fulltalið.


The Econom­ist gerði könnun í samstarfi við YouGov í Banda­ríkj­unum, til að kanna afstöðu þarlendra til farald­urs­ins. Það var um síðustu helgi, fram á Valentínus­ar­dag. Um helm­ingur Banda­ríkja­manna lítur enn, samkvæmt könn­un­inni, á farald­ur­inn sem neyð­ar­ástand eða „nati­onal emer­gency“. Reyndar rúmur helm­ingur þeirra sem tóku afstöðu, alls 46%. 43% sögð­ust ekki gera það og 11% sögð­ust óviss. Yngri hópar líta þar frekar á farald­ur­inn sem neyð­ar­ástand en eldra fólk: 55% fólks á aldr­inum 18–29 ára og 30–44, en aðeins 36% eldri borg­ara. Þá kemur ekki á óvart að frjáls­lyndir eða vinst­ris­inn­aðir kjós­endur Bidens líta miklu frekar á farald­ur­inn sem neyð­ar­ástand (63–66%) en íhalds­samir kjós­endur Trumps (20–23%).

Ég geri ráð fyrir að sambæri­leg könnun hér á landi myndi leiða í ljós að í faralds­fræði­legu tilliti séu íbúar Íslands upp til hópa trömp­megin í lífinu. Jafn­vel vinstrið. Enn veit ég ekki alveg af hverju.


Á Vísi sé ég stutt viðtal við frábæran íslenskan hönnuð sem starfar í New York og segir hvað öll viðmið um vinnu hafi breyst þar í faraldr­inum, fólk vinni nú heiman frá sér, jafn mikið og kostur er. Hvers vegna? Þau hafi bara uppgötvað hvað það er næs, í faraldr­inum. Hann segir Íslend­inga enn ekki hafa kveikt jafn vel á þessu.

Yfir­leitt berast svona lífs­stíls­bylgjur frá uppsprett­unum hingað fyrr eða síðar, það er ekki ólík­legt að fólk í þessum hluta millistétt­ar­innar fari að leggja sig eftir sama vinnu­lagi hér á næstu árum. En vegna þess að hér er almennt litið svo á að faraldr­inum sé lokið er ekki víst að sögunni fylgi, þegar þar að kemur, rökvísin að baki, hvers vegna þetta varð svona eftirsóknarvert.

Og kannski nær þessi bylgja ekki fótfestu hér fyrir vikið. Mótstaðan yrði í öllu falli sterk, frá þeim hluta atvinnu­lífs­ins sem er meira umhugað um vald yfir öðrum en jafn­vel um efna­hags­legan ávinning.