Listin að fela 400 lík

02.3.2023 ~ 1 mín

Það fór svo furðu lítið fyrir útgáfu bókar­innar LTI í íslenskri þýðingu Maríu Kristjáns­dóttur árið 2005, að enn í dag er farið rangt með nafn höfund­ar­ins á síðu útgef­and­ans: Hann hét ekki Klam­p­erer heldur Klem­p­erer, Victor Klem­p­erer. Bókin rataði í mínar hendur á sínum tíma fyrir einhvers konar hend­ingu, þá hafði ég aldrei heyrt hennar getið. Og ég hef sjaldan orðið jafn hissa við lestur á einu riti. LTI stendur fyrir Lingua Tertii Imperii, Tungu­mál þriðja ríkis­ins. Málvís­inda­mað­ur­inn Klem­p­erer var þýskur gyðingur sem hélt dagbók á árunum þegar nasistar komust til valda, yfir þær breyt­ingar sem hann varð vitni að á orðfæri stjórn­valda, almenn­ings og fjöl­miðla. LTI byggir á þessum dagbókum og grein­ingu höfund­ar­ins á inni­haldi þeirra, á árunum eftir síðari heims­styrj­öld. Efnis­lega man ég fátt úr bókinni í dag. Lestur hennar er hins vegar eins og bólu­setn­ing sem eykur manni svolítið viðstöðu­mátt gegn tungu­taki í þjón­ustu yfir­valds. Í dag vitum við að ekkert bólu­efni veitir hundrað prósent vörn og það gerir engin bók heldur. En ég hef ekkert annað lesið sem gagn­ast jafn vel til að þjálfa skyn­færin í þess­ari tilteknu eftir­tekt. Að taka eftir því, til dæmis, þegar nýr heil­brigð­is­ráð­herra talar um 400 dauðs­föll sem „tíma­bund­inn kúf“.

Tímabundinn kúfur