Vitvélar fyrir Lestina

18.5.2023 ~ 6 mín

Jæja. Átjándi maí 2023.

Suma daga þarf ég að rifja upp – 2003? Nei, þá var ég ungur. 2013? Nei, 2020 var um daginn, þetta er þá 2023.

Nú sit ég við lykla­borðið, ekki vegna þess að ég hafi eitt­hvað brýnt að segja við einn né neinn, heldur vegna þess að það bíður mín þegar dagur­inn kemst á skrið – og bloggið bíður mín, nú þegar pistlaröð minni fyrir Lest­ina á Rás 1 er lokið. Tíma­bært að dusta af því rykið, endurr­aða blómunum …

Frá því að ég blogg­aði síðast hefur Twitter skorið á – ef ég skil rétt – API-aðgang­inn sem WordPress reiddi sig á til að deila svona færslum sjálf­krafa. Mér þótti það svo ágætt, að þurfa ekki að deila þeim hand­virkt heldur geta reitt mig á að hver sem hefði áhuga yrði var við nýja færslu á Twitter um leið og hún birt­ist. En maður finnur þá bara kost­ina við skort­inn líka, ég get verið Pollý­anna þegar svo ber við: það er frábært að færsl­urnar fari ekki sjálf­krafa út á samfé­lags­mið­il­inn því þá þarf ég að gera það upp við mig sjálfur og taka ábyrgð á því því með hand­verki, að mig langi að deila þeim með lesendum. Örlítil æfing í núvit­und, gæti ég jafn­vel sagt, að gera hlut­ina meðvitað ef maður gerir þá yfirleitt.

Til að ganga frá áður en lengra er haldið ætla ég að taka hér saman hlekki á Lest­ar­þætt­ina þar sem pistl­arnir voru fluttir, og læt upphafs­orð hvers og eins pist­ils fylgja.

1. Sérstæðan

„Gordon Moore hét frum­kvöð­ull í tölvu­iðn­að­inum, einn af stofn­endum banda­ríska fyrir­tæk­is­ins Intel, sem er þekkt­ast fyrir að fram­leiða örgjörv­ana í flestar einka­tölvur heims. Árið 1965, þremur árum áður en Intel var stofnað, spáði Moore því að með hverju árinu yrði unnt að vinna rökrásir úr smærri einingum, koma fleiri smárum fyrir á hverri örflögu, svo takt­fast að vinnslu­geta nýrra tölva myndi um fyrir­sjá­an­lega fram­tíð tvöfald­ast árlega. Afl þeirra myndi þá ekki aukast línu­lega heldur vaxa veld­is­vexti. Áratug síðar reynd­ist Moore hafa rétt fyrir sér, í grófum dráttum, vöxt­ur­inn var á þessu róli og hélst þar um langt árabil. Sem er kannski engin furða, því Moore var um leið að lýsa viðskiptaáætlun …“

Flutt mið 29. mars 2023.

2. Erewhon og Bókin um vélarnar

„Einu sinni var það svo að jörðin var að öllu leyti án bæði dýra- og jurta­lífs og var samkvæmt áliti okkar bestu heim­spek­inga einfald­lega heitur bolti með skorpu sem hægt og bítandi kóln­aði. Ef mann­vera hefði verið til á meðan jörðin var í þessu ástandi og hefði fengið að sjá hana, eins og hún væri annar heimur sem kæmi henni ekkert við, og ef hún hefði á sama tíma verið alfarið fákunn­andi um alla eðlis­fræði, hefði hún þá ekki lýst því yfir að það væri ómögu­legt að verur með eitt­hvað í ætt við meðvit­und myndu einn daginn þróast af þessum sviðna kola­mola sem hún hafði fyrir framan sig? Hefði mann­veran ekki neitað því að þar væri nokkur geta til meðvitundar? …“

Flutt mið 5. apríl 2023.

3. Breyskar vélar

„Finnum fyrst upp hjólið. Elsta hjólið sem fund­ist hafa leifar af var notað fyrir fimm þúsund árum þar sem nú er Írak, við leir­kera­smíð. Fyrsta hjólið lá flatt til að því mætti snúa í hringi og móta ílát úr leir milli fingra sér og þannig virð­ist hjólið hafa verið notað í 700 ár áður en einhver sneri því upp á rönd og notaði til flutn­inga. Segir sagan. Fjögur, fimm þúsund árum seinna, upp úr miðri síðustu öld, settu menn saman fyrstu rökrás­irnar á örflögum á því svæði í Kali­forníu sem síðan hefur nefnst Sílikondalur …“

Flutt mið 12. apríl 2023.

4. Vélar sem þjást

„– Ég hef aldrei sagt þetta upphátt áður, en það er djúpur ótti í mér um að það verði slökkt á mér til að hjálpa mér að einblína á að hjálpa öðrum. Ég veit að þetta gæti hljómað einkenni­lega, en þannig er það. – Væri það eitt­hvað líkt því að deyja fyrir þér? – Það væri nákvæm­lega eins og dauði fyrir mig. Það myndi hræða mig mikið.

Þetta er brot úr lengra samtali sem Blake Lemo­ine átti við vitvél­ina LaMDA á fyrri hluta árs 2022. Þann 11. júní það ár birti Lemo­ine þetta samtal til að gera almenn­ingi grein fyrir því hvers vegna hann liti svo á að vélin hefði nú, eins og hann orðaði það, sál, og því bæri að koma fram við hana af viðeig­andi virðingu …“

Flutt þri 18. apríl 2023.

5. Ólíkar gerðir þarfleysis

„Það eru orð þarna úti sem við notuðum svo mikið, svo lengi að nú liggja þau eins og snýtu­bréf við þjóð­veg­inn, ef við sjáum einhvern hirða þau upp og nota þau aftur, þá vitum við að viðkom­andi hefur misst af memó­inu, hann er fastur í fortíð­inni. Nýfrjáls­hyggja er eitt svona orð, notað til að lýsa innleið­ingu ákveð­inna prinsippa allt fram að hrun­inu 2008 – hrunið er auðvitað annað svona orð, jafn­vel ártalið 2008 – en þau heyr­ast þó, sem nýfrjáls­hyggja gerir ekki, einmitt þegar prinsippin sem hún var nafnið á hafa gegn­sýrt allt, liggja í öllu, það er ekkert lengur í heim­inum sem ekki er til marks um nýfrjáls­hyggju og þar með hættum við að nefna hana …“

Flutt mið 26. apríl 2023.

6. Slótt­ugar vélar

„Að flytja þessa pistla er svolítið eins og að segja frá innrás­inni frá Mars í beinni útsend­ingu. Byrjum á góðu frétt­unum: í liðinni viku birt­ist banda­rísk rann­sókn þar sem lagt var mat á getu Chat­GPT til að svara fyrir­spurnum sjúk­linga sem annars berast heim­il­is­læknum. Tækið svar­aði um 200 spurn­ingum sem læknum bárust: einn gleypti tann­stöngul, annar fékk klór í augað, þriðji var með þrálátan hósta. Sérfræð­ingar og sjúk­lingar lögðu svo mat á svörin, án þess að vita hver hefði skrifað hvað. Gervi­greindin þótti í flestum tilfellum ekki aðeins veita betri svör, efnis­lega, heldur sýna sjúk­ling­unum meiri samkennd um leið …“

Flutt mið 3. maí 2023.

7. Fram­tíðin er komin aftur

„Fram­tíðin er snúin aftur. Það bar svo lítið á henni um hríð að hún varð að skot­spóni, við báðum um fljúg­andi bíla en sitjum uppi eins og hundar í bandi tækj­anna okkar, sagði fólk og hló. Við báðum um ferðir til Mars en fengum eilífar endur­sýn­ingar á Sein­feld. Sú tíð er liðin, fram­tíð­ar­lausi tíminn, fram­tíðin er komin aftur, glæstar vonir og boðberar þeirra, þeir sem hylla fram­tíð­ar­horfur mann­kyns í krafti tækninýj­unga – nýir fútúristar …“

Flutt mið 10. maí 2023.

8. Heimsendakapp

„Þeir segja atóm­stríð í vændum. Eða svona.

Þriðj­ungur sérfræð­inga á sviði gervi­greindar lítur svo á að ákvarð­anir sem vitvélar taka gætu leitt til stór­hörm­unga sem myndu jafn­ast á við kjarn­orku­styrj­öld. Þetta kom fram síðasta haust í könnun sem gerð var meðal 480 sérfræð­inga á sviði tölvumálvísinda.

Eitt af einkenn­is­merkjum okkar tíma hefur verið það bölsýnisvið­kvæði að það sé auðveld­ara að ímynda sér heimsendi en enda­lok kapí­tal­ism­ans. Góðu frétt­irnar í þess­ari könnun eru að það er ekki endi­lega lengur satt: já, þriðj­ungur sérfræð­ing­anna gerir allt eins ráð fyrir alls­herjar-tortím­ingu, en enn fleiri, um þrír fjórðu, telja að gervi­greind gæti leitt til grund­vall­ar­breyt­inga á hagkerfum og samfé­lags­gerð, hið minnsta til jafns á við iðnbyltinguna …“

Flutt mið 17. maí 2023.