Í heiminum er nokkur hópur fólks, þar á meðal nokkur hópur sérfræðinga, sem lítur svo á að þegar stjórnvöld flestra ríkja ákváðu að fella niður sóttvarnir vegna heimsfaraldursins, hafi það ekki verið sigurstund, faraldrinum hafi ekki í neinum skilningi verið lokið, heldur bláköld uppgjöf. Faraldurinn hafi unnið. Og heldur nú áfram að geisa. Við höfum aðeins ákveðið að loka augunum fyrir því.
Þau benda á að enn dregur hann fjölda fólks til dauða.
Þau benda á að enn fleiri sitja uppi með afleiðingar sem eru allt frá því að vera bagalegar til þess að vera lífshamlandi fötlun.
Þau benda á að enn sé ekki útséð með langtímaafleiðingar sýkingar, hvað þá endurtekinna sýkinga.
Og þau benda á að enn haldi veiran áfram að stökkbreytast.
Í öllu þessu vísa þau til rannsókna. Og þau draga upp hliðstæður úr sögunni, segja að það að ekki hafi verið ráðist í alþjóðlegt átak um bætt loftgæði jafngildi tregðunni til að bregðast við þegar kom í ljós, á 19. öld, að kólera breiddist út með óhreinu vatni. Það tók víst langan tíma að festa í sessi ný viðmið um aðgang fólks að hreinu vatni.
Þau benda á að lífslíkur fólks í öllum heimsálfum hafa dregist saman í faraldrinum. Í Bandaríkjunum um heil tvö ár.
Þau segja að fólki hafi verið talin trú um að það væri í þeirra hag að hætta öllum sóttvörnum, þegar það hafi í raun aðeins verið í hag ákveðinna hluta hagkerfisins, hins og þessa iðnaðar.
Og þau segja að með því að fallast á þetta, fallast á það í einu samhentu átaki að gera ekki neitt, beinlínis ekki neitt, til að forða jafnvel fólki í þekktum, viðkvæmum hópum frá banvænni farsótt, hafi verið fallist á nýtt grundvallarviðmið sem ekki sjái fyrir endann á afleiðingunum af.
Þau segja að þannig sé verið að venja okkur við fjöldadauða sem mætti komast hjá og fjöldafötlun sem mætti líka komast hjá, sem eðlilegt ástand.
Þau segja að það kyndi undir fylgi öfgahægrihreyfinga um allan heim. Vegna þess, segja þau, að það viðmið sem þannig hafi verið innsiglað sé að skipta fólki, umyrðalaust, í þau sem mega missa sín og þau sem ekki mega missa sín. Verðmæt líf og verðlaus líf. Og þau sem mega missa sín, þau megi þá missa sín í þágu þess að verðmætu lífin verði ekki fyrir truflunum. Í þágu skemmtana, í þágu eðlilegs lífs, og auðvitað í þágu hagvaxtar.
Þau segja að þar með séu hliðarafleiðingarnar þó ekki fyllilega upp taldar, enda séu viðvarandi veikindi tugmilljóna ein undirliggjandi ástæða þeirrar verðbólgu sem nú geisar um allan heim.
Þau sjá reyndar ýmsar fréttir í þessu ljósi. Fréttir af hnignun heilbrigðiskerfa á öllum Vesturlöndum, til dæmis, að búist sé við að þau verði ekki jafn vel mönnuð á næstu árum og þau voru fram til 2019. Fréttir af tónlistarmönnum sem hætta við tónlistarferðalög vegna skyndilegra veikinda. Hitt og þetta. Þau sjá ekki betur, raunar, en að verið sé að mylja úr veröldinni, hola hana að innan, eiginlega riði allt til falls.
Og þau segja að þetta viðmið vísi ekki á gott í samhengi við hnatthlýnun, meðal annarra hörmunga framundan. Ef sama viðmiði verði fylgt andspænis þeirri vá og er nú fylgt í faraldrinum, þá verði fallið frá sameiginlegum aðgerðum og vörnum fyrr en síðar, fólki falið að tækla breyttar aðstæður sem vandamál einstaklinga, hnatthlýnun verði þá spurning um að festa kaup á góðri lóð á góðum stað, eiga góða viftu. Því ekki ætlum við að taka höndum saman um að fyrirbyggja vanda.
Mér þykir ekki sérlega langsótt sjálfum að líta á Úkraínustríðið í þessu ljósi: að einmitt þegar stjórnvöld ákváðu að gefast upp fyrir sameiginlegum óvini hafi öllum hentað vel að beina athyglinni að einhverju allt öðru, helst einhverju hávaðasömu. Það sé ekki endilega meðvituð ákvörðun, þaðan af síður nokkurs konar samsæri, heldur hliðri tjónið sem við samþykktum að þegja um dómgreind flestra leikenda: Pútín hafi þótt tilvalið að fást við vanda sem hann kann á – land og hernað – með tækjum sem hann ræður yfir, frekar en að hafa hugann við hitt sem hann réði ekki við. NATO-liðum þyki það bara tilvalið líka. Allir séu geim, öllum henti þetta bara býsna vel. Nema þeim sem fyrir verða, auðvitað, almenningi í Úkraínu, hermönnum frá bæði Úkraínu og Rússlandi. En dauðsföllin meðal þeirra eru svo langtum færri en dauðsföllin í faraldrinum enn sem komið er, að samkvæmt hinu nýja normi er það ekkert til að staldra við.
Eitthvað á þessa leið er fólk að velta vöngum. Og það má finna sum þeirra á twitter, undir myllumerkinu #covidisnotover.