Ég gerði undantekningu frá þeirri meginreglu að líta ekki á símann við kvöldverðarborðið, til að sjá fréttir frá blaðamannafundinum í Washington eftir fundinn um Grænland. Lars Løkke Rasmussen heitir utanríkisráðherra Danmerkur, Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra Grænlands. Fyrir blaðamannafundinn birtust myndir af fistbömpi Rasmussens og sendiherra Dana í Washington, sem þótti góðs viti. Eitthvað hefði gengið vel. Og sígarettunni, þau fengu sér bæði sígarettu þarna fyrir utan, eftir fundinn, Rasmussen og Motzfeldt. Það þótti líka góðs viti. Fundurinn hlyti að hafa verið vel heppnaður, þeim hlyti að vera létt. Sá lestur reyndist óskhyggja. Stundum er sígaretta bara sígaretta.
Í beinni textalýsingu RÚV frá blaðamannafundinum birtust níu millifyrirsagnir:
- Blaðamannafundurinn hafinn
- Eru sammála um að vera ósammála í bili
- Fús til að vinna með Bandaríkjunum
- Motzfeldt ávarpar grænlensku þjóðina — á grænlensku
- Nú höfum við að minnsta kosti reynt okkar besta
- Ljóst að Bandaríkjaforseti vilji leggja Grænland undir sig
- Motzfeldt: Við erum bandamenn og vinir
- Grænlendingar vakni við nýjar hótanir á hverjum degi
- Fundinum er lokið
Fjórða fyrirsögnin var á sinn hátt dapurlegust. Eða ekki fyrirsögnin ein heldur sú færsla í heild. Undir yfirskriftinni „Motzfeldt ávarpar grænlensku þjóðina — á grænlensku“ stóð: „Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra Grænlands kvaðst ætla að tala á grænlensku í ljósi þess að margir Grænlendingar fylgist með fundinum.“ Þar með lauk þeirri frásögn. Engin þýðing á því sem Motzfeldt sagði birtist í beinu lýsingunni, og engin að henni lokinni heldur. Sem má ætla að komi upp um að enginn starfsmaður RÚV tali grænlensku.
Líklega er þar ekki við RÚV að sakast, líklega er þetta ekki vandræðaleg staðreynd um stofnun heldur um land, þetta land hérna. Hversu margir Íslendingar ætli tali grænlensku? Hversu margir ætli tali hana vel? Er hægt að læra hana í einhverjum menntaskóla, velja hana sem þriðja mál, fjórða mál? En í háskóla?
Í öllu falli veit ég ekki enn hvað Motzfeldt sagði við landa sína, á blaðamannafundinum. En svipurinn á henni var skýrari en flest orð sem féllu á öðrum málum.
