Það er hópur á Facebook þar sem fólk lætur vita þegar því ofbýður verðlag á vörum eða þjónustu, „Vertu á verði — eftirlit með verðlagi“. Yfir 40 þúsund þátttakendur, tíundi hver íbúi landsins er þarna inni. Og fyrir einhverjum misserum síðan lét einn þeirra, einn okkar, alla hina vita að hann hefði verið rukkaður nokkuð ríflega fyrir súkkulaðisnúð. Voru það 1.400 krónur? Ég man það ekki nákvæmlega, segjum það.
Meðal þess sem gerist hvenær sem hátt verð vekur mikla athygli í þessum hópi er að athugasemdir raðast upp til varnar ekki bara því tiltekna verði eða tiltekinni verslun, heldur eiginlega til varnar okri yfirleitt, okri sem prinsippi. Ísland er eyja í órafjarlægð frá umheiminum, er ein algeng vörn, aðflutninga dýrir og laun í landinu eru há svo ekki sé minnst á launatengdu gjöldin, og fyrirtæki verða að standa undir sér. Við þessa tilteknu færslu voru áreiðanlega einhverjir snöggir að benda á að maðurinn hafi keypt þennan snúð á ferðamannaslóðum, kannski við Gullfoss eða Geysi, og „ef þú vilt ódýrari snúða geturðu bara keypt þá í Bónus“ hefur einhver sagt. Eitthvað á þá leið, nákvæma útfærslan er ekki alltaf sú sama en almenna tilhneigingin er eins fyrirsjáanleg og klukka.
Stundum hafa aðrir þátttakendur þá gert athugasemd við svona varnir og jafnvel spurt hvort þar fari beinlínis útsendarar fyrirtækjanna, hafi tekið að sér einhvers konar hagsmunavörslu viðskiptalífsins. Þá hefur það líka gerst að einhver svarar svo gott sem játandi: „Auðvitað þurfa sjónarmið verslunarrekenda að koma fram hér líka, það þarf að vera eitthvert jafnvægi á þessari umræðu …“ – hef ég eftir minni. Semsagt, fyrir utan allt það fólk sem virðist iðulega reiðubúið að mæta á hvaða vettvang sem er til að draga úr gagnrýni valdalítilla að valdameiri aðilum, án þess að hafa þar beina eða augljósa hagsmuni að verja, þá má þarna líka finna atvinnumeðmælendur viðskiptalífs og verslunareigenda, mætta í því opinskáa augnamiði að gæta hagsmuna yfirboðara sinna.
Í samræðunni um snúðinn birtist ein athugasemd sem er ekki gott að segja hvort kom frá fyrri hópnum eða þeim síðari, frá áhugamanneskju um að verja okur eða fagmanneskju, en einhver sló inn á lyklaborð og ýtti svo á Enter til að staðfesta ummæli sem voru eitthvað á þessa leið: „Það er mikil fyrirhöfn að baka. Persónulega myndi ég aldrei baka heilan súkkulaðisnúð fyrir minna en 2.000 krónur.“ Ég get ekki svarið fyrir tölurnar, kannski kostaði okursnúðurinn 1.500 krónur og kannski sagðist varðliðinn ekki sjá fyrir sér að baka snúð fyrir minna en 5.000, en lógíkina man ég. Og hún sækir á mig, birtist mér aftur og aftur sem flashback í ólíku samhengi. Það er því tímabært, held ég, að reyna að festa fingur á hvers vegna.
Í fyrsta lagi: ekki sé ég heldur fyrir mér að baka súkkulaðisnúð fyrir minna en 2.000 krónur, ekki ef hann er ætlaður til sölu. Raunar kann ég svo lítið um bakstur súkkulaðisnúða að jafnvel á lágu tímakaupi næmi kostnaður minn fljótt tugþúsundum króna frekar en þúsundum, ætti snúðurinn að verða frambærileg markaðsvara. Ég gæti beinlínis þurft að mennta mig til verksins fyrst og þar með væri kostnaðurinn við snúðinn rokinn upp í milljónir króna. En í öllu falli aldrei minna en 2.000 krónur, það blasir við.
Í öðru lagi: hin falska forsenda þessarar athugasemdar, það sem gerir hana svona fyndna, er auðvitað að verkaskipting, sérhæfing, fjöldaframleiðsla og iðnvæðing hafi aldrei átt sér stað. Að við búum í hagkerfi þar sem raunkostnaðurinn við hvern framleiddan hlut sé erfiðið sem það myndi kosta sjálfan mig eða með öðrum orðum manneskju valda af handahófi að búa hann til. „Ekki myndi ég setja saman iPhone fyrir minna en milljón.“
Að þessi forsenda er fölsk blasir í þriðja lagi við öllum, þar með talið hverjum sem þótti þessi athugasemd samt sem áður tæk vörn fyrir okurverði á súkkulaðisnúð. Og ef ekki tæk, þá að minnsta kosti frambærileg. Rangstæð en samt þess virði – leit svo á að hún hefði æskileg áhrif.
En í fjórða lagi hvarflar að mér að kannski sé það röng túlkun. Hugsanlega hafi eitthvað ærlegra legið að baki, í ákveðnum skilningi, en um leið skaðlegra. Að ritari athugasemdarinnar haldi ekki að hver súkkulaðisnúður á landinu sé í reynd handbakaður, einn í einu, af fórnfúsu áhugafólki um súkkulaðisnúða sem selji þá að jafnaði undir kostnaðarverði til að aðrir fái notið þeirra, heldur viti hann vel að súkkulaðisnúðar eru iðnvarningur og landið að því leyti nútímavætt. Hins vegar leggi viðkomandi lykkju á leið sína til að halda því til haga að þessi nútími og öll hans hagkvæmni sé nú ekkert til að stóla á, fólk ætti ekki að taka honum sem gefnum heldur hrósa happi að hafa nokkurn aðgang að honum yfirleitt, hrósa happi í þeim skilningi að kvarta ekki þó að aðgangurinn sé takmarkaður eða skertur, til dæmis með okri. Að kvarta yfir háu verðlagi séu hortugheit þegar þakklæti ætti betur við.
Sem vekur í fimmta lagi spurninguna: þakklæti í garð hvers? Hverjum ættum við að þakka fyrir aðgang okkar að tækniframförum undanliðinna alda? Ég held að undirliggjandi svar þessarar heimsmyndar væri: hverjum þeim sem fer með nokkur völd yfirleitt, ráðherrum eða forstjórum, enda sé aðgengi almennings að nútímanum háð velvilja og góðfúslegu leyfi valdhafa. Greiðvikni þeirra við okkur.
Þessi túlkun eða tilgáta um athugasemdina um verðið á súkkulaðisnúðnum hangir þannig í sjötta lagi á þeirri tilfinningu – og þá meina ég skilningi – að þessa grundvallarafstöðu megi finna nokkuð víða á landinu. Ef ekki hjá raunverulegum meirihluta fólks, þá eftir sem áður nokkuð veigamiklum hópi sem í einhverjum skilningi reynist stundum ríkjandi. Að það að hugsa um hag sinn og annarra sem rétt sé byggt á óforskömmuðum misskilningi, enda sé hann aldrei nema í besta falli leyfi, tímabundið frávik. Frá hvaða reglu þá?
Í sjöunda lagi: samkvæmt þessari hugmynd um tilveruna er nútíminn tímabundið frávik frá reglu sem við minnum hvert annað á í hvert sinn sem við klifum á því hvað lífið í þessu landi hafi áður fyrr, næstum alla tíð, verið erfitt, náttúran hörð og einangrunin mikil. Ekki að það sé ósatt. En að breyttu breytanda er það satt næstum hvar sem er: fyrr á öldum var erfiðara að draga fram lífið en það er nú. Þó er þeirri staðreynd ekki víða veitt jafn mikil og linnulaus athygli, í jafn mörgu óskyldu samhengi, og hér. Að baki eymdarstaglinu sem er eins og marr í gömlu húsi, einhvern veginn alltaf í bakgrunninum, liggur hljóðlát sannfæring um að nútíminn sjálfur sé eins konar Jónsmessunæturdraumur, tímabundið frávik frá hinum raunverulega raunveruleika, sem senn muni láta til sín taka á ný og kippa fótunum undan hverjum þeim sem finnst þau eiga nokkurt tilkall til súkkulaðisnúða. Eða, að sama skilningi, til húsnæðis sem ekki lekur, til kyndingar og rafmagns og samgöngukerfa. Frítíma, félagslifs, skemmtana. Og svo framvegis.
Ég á við, í áttunda lagi, ekki bara meinfýsni heldur mjög tiltekna meinfýsni: að hugmyndir, ef ekki allra þá að minnsta kosti ókunnugs fólks, um betra líf og réttlæti séu að jafnaði fyrirlitlegar og þeim sé best að svara, til samræmis við það, með grettu eða hnussi. Eða fáránlegri fullyrðingu um hvað maður myndi rukka fyrir það sjálfur að vera bakarí. Ekki minna en tvö þúsund krónur.
Mögulega er þetta of langt gengið í túlkun á athugasemd við Facebook-færslu um verðið á súkkulaðisnúð. En ég hef ekki fundið aðra trúverðugri.
