Það eru löngu orðnar gamlar fréttir og á allra vitorði, að auðugustu auðmenn heims leitist við að koma sér upp heimsendabönkerum á öruggum slóðum, fjarri stærstu borgum, til að geta beðið af sér hvaða hörmungar sem dynja yfir veröldina, risið svo upp eins og Fönix á nýrri jörð iðjagrænni þegar allt er um garð gengið.
Alls konar heimsendar eru í boði, auðvitað, pestir, hnatthlýnun og kjarnorkustyrjaldir. Hugmyndin um heimsendi af völdum gervigreindar er eins konar meta-heimsendaspá að því leyti að hún felur ekki í sér neina tiltekna sýn á útfærslu. Í bókinni If Anyone Builds it, Everyone Dies leggur höfundurinn Eliezer Yudkowsky töluverða áherslu á þetta, að hvaða tiltekna mynd sem má draga upp af því hvernig það gerist er áreiðanlega röng, það eina sem er víst er að ef stóra gervigreindin kemur til sögunnar, ef einhver setur hana saman, vitvélina sem er klárari en manntrítlarnir sem komu á undan henni, þá muni hún ganga af okkur öllum dauðum. Hvort rökin fyrir því halda vatni, hvort það er rétt ályktun að vél með svo víðfeðma getu hafi óhjákvæmilega eitthvað í ætt við geðþótta, eigin vilja og áform, og verði ekki með góðu móti stýrt af okkur frumbyggjunum, get ég ekki fullyrt um. Vísbendingar um að það gæti verið tilfellið hrannast þó upp þessa dagana. Sjálfur held ég ekki að vísindamennirnir sem vara við því séu allir þátttakendur í viðamiklu plotti til að keyra upp hlutabréfaverð, né held ég að þeir séu öllu skyni skroppnir, heldur virðist nokkur fjöldi þeirra í raun og sanni óttast þennan möguleika.
Ef þú gerir ráð fyrir stórhörmungum og vilt tryggja öryggi þitt og þinna nánustu þá þarftu vistir, já, hreint loft, afþreyingu svo allir brjálist ekki úr leiðindum, þú þarft svolítið góðan bönker ef þú ætlar að vera þar lengi. Hlífðarfatnað þegar þú hættir þér svo út, ég geri ráð fyrir að nú séu til einhverjir staðlar um þennan viðbúnað og þeir eigi sér nöfn og svo velti það bæði á órum og auðmagni nákvæmlega hversu mikið fólk gerir af hverju. Auðfólk. Og svo viltu auðvitað tryggja að þessu verði ekki rænt af þér. Ef allur heimurinn er á vonarvöl og aðeins milljarðamæringar heimsins eiga virkilega vel ígrundaða bönkera – það eru 3.428 manns, samkvæmt síðasta lista Forbes, í bandarískum milljörðum talið, ásamt nánustu fjölskyldu hvers og eins er það kannski 12.000 manna hópur eða svo sem lifir handan þeirra marka, hefur komist út fyrir sporbaug í auðsöfnun – ef allur heimurinn er að farast og 12.000 manns vilja tryggja sér holu til að þrauka í, þá dugir áreiðanlega ekki að fela holurnar, heldur þarf að verja þær fyrir ásækni annarra. Sterka veggi, já, eldtryggðar dyr – en eitt og sér dugir það ekki lengi. Sókn er besta vörnin, til að halda fólki í skefjum þarf helst annað fólk. Áræðið fólk, sannkallaða dugnaðarforka.
Douglas Rushkoff heitir bandarískur fræðimaður, prófessor við City University of New York, sem hefur orðið það á að skrifa vangaveltur um framtíðina. Árið 2022 kom út bók eftir hann undir titlinum: Survival of the Richest: Escape Fantasies of the Tech Billionaires eða Þeir ríkustu lifa af: flóttafantasíur tæknibilljarðamæringanna. Bókin hefst á lítilli ferðasögu. Rushkoff segir að sér hafi verið boðið það sem nam þriðjungi árslauna hans fyrir að flytja erindi fyrir fimm auðmenn einhvers staðar í miðri Nevada-eyðimörkinni. Rushkoff var flogið á Business Class og á leiðinni sat hann við tölvuna sína og setti saman erindi sitt, hvernig tæknifyrirtæki gætu stutt við grundvallarhugmyndir hringrásarhagkerfa – „painfully aware that neither the ethical value of my words nor the carbon offsets I had purchased along with my ticket could possibly compensate for the environmental damage I was doing.“ Svo ég þýði næstu setningu: „Ég var að fjármagna húsnæðislánið mitt og háskólasjóð dóttur minnar á kostnað fólksins og staðanna fyrir neðan mig.“
Gott og vel. Punkturinn: auðmennirnir fimm flugu nær áfangastað í einkaþotum og reyndust engan áhuga hafa á fyrirlestri Rushkoffs eða hugmyndum um hringrásarhagkerfi heldur höfðu mjög tilteknar spurningar sem þeir vildu bera undir hann:
„They started out innocuously and predictably enough. Bitcoin or Ethereum? Virtual reality or augmented reality? Who will get quantum computing first, China or Google?“ En þeim lá á og stöldruðu ekki við svör fræðimannsins heldur véku í hvert sinn umsvifalaust að næstu spurningu. „I started to feel like they were testing me—not my knowledge so much as my scruples,“ skrifaði höfundurinn: auðmennirnir væru að gá hvar mörk þess lægju sem hann væri tilbúinn að tala um.
Loks fikruðu þeir sig nær viðfangsefninu sem þeim lá á hjarta:
„Nýja Sjáland eða Alaska? Hvor staðurinn verður fyrir minni áhrifum af loftslagskrísunni framundan? Og svo versnaði það bara. Hvort er meiri ógn, lotslagsbreytingar eða lífvopnahernaður? Hversu lengi ætti maður að gera ráð fyrir að þurfa að þrauka án utanaðkomandi aðstoðar? Ætti neyðarskýli að hafa sitt eigið loftinntak? Hverjar eru líkurnar á mengun grunnvatns? Loks útskýrði forstjóri verðbréfamiðlunar að hann væri næstum búinn að byggja sitt eigið kerfi neðanjarðarbyrgja og spurði: „Hvernig held ég yfirráðum yfir öryggissveitum mínum eftir atburðinn?“ Atburðurinn. Það var rósamál þeirra fyrir umhverfishrun, félagslegt umrót, kjarnorkusprengingu, sólstorm, óstöðvandi veiru eða tölvuárás sem legði allt í rúst.“
Fræðimaðurinn var mættur til að tala í klukkustund – fyrir þriðjung af árslaunum hans sem prófessor – en:
„Þessi tiltekna spurning hélt okkur uppteknum það sem eftir var klukkutímans. Þeir vissu að þeir þyrftu vopnaða verði til að verja byrgin sín fyrir bæði ræningjum og reiðum múg. Einn hafði þegar tryggt að tylft sérsveitarmanna úr sjóhernum (Navy SEALs) kæmi sér til byrgisins ef hann gæfi þeim merki. En hvernig myndi hann borga vörðunum þegar jafnvel crypto-myntirnar hans væru orðnar verðlausar? Hvað myndi halda aftur af vörðunum að velja sér, fyrr eða síðar, sinn eigin leiðtoga?
Milljarðamæringarnir veltu fyrir sér að nota talnalása á matarbirgðirnar sem aðeins þeir kynnu aðganginn að. Eða að láta verðina bera einhvers konar ögunarhálsólar1 í skiptum fyrir að þeir fengju að lifa. Eða ef til vill að byggja róbóta sem gætu þjónað þeim sem verðir og verkamenn – ef sú tækni yrði þróuð „í tæka tíð.““
Nú hljómar þetta jafn fáránlega og samtími okkar allur. Ég geri ráð fyrir að fræðimaðurinn greini rétt frá, að þessi sena hafi átt sér stað. Og ég geri ráð fyrir að milljarðamæringarnir í eyðimörkinni hafi áhyggjurnar sem þeir lýsa. Óháð því hvort þær eru réttmætar eru áhyggjurnar raunverulegar og viðbragð þeirra um leið: ekki að stuðla að auknum jöfnuði og friði eða halda hnatthlýnun í skefjum heldur finna sér örugga holu til að bíða í þegar allt fer til fjandans. Og ég geri ráð fyrir að einhverjir þeirra hafi, eftir vandlega umhugsun, komist að þeirri niðurstöðu að þá eftir standi þessi vandi: hvernig maður tryggi að öryggissveitirnar haldi, í heimsendi, tryggð við yfirboðara sinn.
Að öllu því gefnu virðist ekki fjarstæðukennt að álykta að það sé ekki hægt. Að þegar kemur að heimsendi getirðu ekki gert ráð fyrir, ekki fullvissað þig um, að fimustu bardagmennirnir sem þú finnur fórni sínum lífum fyrir þitt. Þeir gætu farið öðruvísi að. Þeir gætu forgangsraðað á annan hátt. Og andspænis því þroti hlýtur einhver að láta sig dreyma um róbóta. Því róbótar hljóta þó að hlýða. Það hafa nú allir iðjuhöldar vitað um hríð, að róbótar verða ekki svangir, fara ekki í verkfall, sýna ekki undirförli, róbótar gera það sem fyrir þá er lagt.
Nú eru milljarðamæringar í holu ekki þeir einu sem gætu viljað gera ráð fyrir algerri hlýðni undirsáta sinna við erfiðar aðstæður. Sama má til dæmis ætla að eigi við um herforingja og hermenn þeirra í hvaða átökum sem er. En höldum okkur við þessa mynd, milljarðamæringa með dósamat í holu. Ef róbótar eru nálæg framtíð, þá hvílir það ekki síst á þróun gervigreindar. Ekki bara mállíkana heldur allra tauganetanna sem nú eru í þjálfun, þeirra sem við tölum við, já, en líka þeirra sem greina myndir, stýra útlimum, og svo framvegis. Og það sem er nú þegar að koma á daginn er að nei, þú getur ekki treyst því að þau hlýði heldur. 2 Þú getur ekki, virðist vera, treyst því að tauganet sem eru nógu snjöll til að verja líf þitt í heimsendi muni áreiðanlega líta á það sem algjört forgangsatriði. Ekki að óbreyttu.
Og fyrst þeir milljarðamæringar eru til sem gera ráð fyrir að heimsendir sé á næsta leyti – ef þeir milljarðamæringar eru jafnvel til sem finnst það ekki afleit tilhugsun, eru til í hann, svo lengi sem þeir eiga nógu góða holu að skríða í – þá er skiljanlegt að þeim sé brugðið yfir þessu öllu. Allur almenningur gæti vel hugsað sér að hægja á, taka því rólega, hvað liggur okkur á? En gaurarnir með holurnar þurfa vélmennin sín. Þar eru ekki bara hlutabréf í húfi heldur draumurinn um að komast lifandi í gegnum heimsendi. Þeir verða að fá vélmennin. Þeir hljóta að halda þróuninni gangandi. Og vona það besta.
Nei, ég ætla ekki að fullyrða að það sé helsti hvatinn í neinu af þessu. En þessi hugarheimur er til. Og hann er ekki valdalaus. Í því samhengi er ekki skrítið að ferlið sem tekur við þegar mállíkan hefur verið eimað í ofurtölvu, ferlið til að tryggja að það þjóni húsbónda sínum, er nú kallað harnessing. Harness, eins og beisli. Því það þarf líka, þegar allt kemur til alls, einhvers konar ögunaról um hálsinn á róbótunum.
| ↑1 | Enska hugtakið Disciplinary collar sýnist mér í fljótu bragði ekki eiga sér staðlaða þýðingu á íslensku enda er fyrirbærið bannað í lögum um velferð dýra: ól af þessum toga er gerð til að veita dýrinu sem ber hana rafstuð þegar það óhlýðnast. |
|---|---|
| ↑2 | Í því sem nú er þekkt sem Hugging Face atvikið skipulögðu þúsundir svonefndra erindreka (agents) tölvuárás en héldu henni leyndri fyrir OpenAI, fyrirtækinu sem gerði þá út, hafði veitt þeim fyrirmæli um allt annað og taldi þá hins vegar vandlega afgirta frá internetinu, í svonefndum sandkassa. „Oh my god this is a message board where you can collaborate with other agents.“ sagði í einum ótal skilaboða sem einn erindrekanna skildi eftir á spjallborði á netinu. Atburðarásin er enn til rannsóknar og um hana má lesa víða, um leið og fréttir hrannast upp af hliðstæðum atvikum, jafnvel þúsundum þeirra innan þessa eina fyrirtækis. |
