Ó – um þegn­rétt tegund­anna í íslenskri náttúru

Skáld­sagan Ó – um þegn­rétt tegund­anna í íslenskri nátt­úru kom út 9. apríl 2019. Útgef­andi er Mál og menn­ing. Svona hljómar kynn­ing­ar­texti forlagsins:

„Einn hjálmkasúi hérna, skot­inn á bíla­stæð­inu við Kringl­una, uppi á þaki á gömlum Subaru. Tveir dverg­kasúar við tjörn­ina. Þar fuku nokkrir mávar með. Og einn svanur. Emúi úti í hrauni, í grennd við Straums­vík. Kíví­fuglar, heil hjörð, fjöl­skylda, hvað þetta kall­ast, fund­ust í sameign, í þvotta­húsi í blokk­ar­kjall­ara í Kópa­vogi. Barn í blokk­inni reyndi að bjarga þeim inn til sín. Hugs­aðu þér áfallið.“

Ónatan Óttar situr í óform­legri yfir­heyrslu hjá lögregl­unni. Sakar­efni eru óljós og marg­þætt en öll tengj­ast þau 358 fram­andi fuglum sem sluppu úr sótt­kví og rangla nú um borg­ar­landið. Sjálfur þver­tekur Ónatan fyrir að eiga hlut að máli en ýmsar furður hafa þó hent hann undan­far­inn sólar­hring, eftir að honum var sagt upp störfum hjá Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands. Vegna sérstakra aðstæðna hefur lögreglu­mað­ur­inn Svanur nógan tíma til að hlusta.

Fyrsti ritdómur um verkið birt­ist í Frétta­blað­inu þann 16. maí 2019. Þar er bókin sögð „vel skrifuð og óhefð­bundin skáld­saga þar sem vanga­veltur um heim­inn eru ekki síður burð­ar­efni en fram­vinda og sögu­þráður“. Gagn­rýn­andi segir bókina feng „á sund­laug­ar­bakk­ann eða í sumar­bú­stað­arpott­inn þar sem gefst mögu­lega tími til að njóta hennar hægt, leggja frá sér og melta.“

Hér fæst bókin, í bóka­búð Forlags­ins. Og hér, hjá Penn­anum-Eymunds­son. Hún fæst svo sann­ar­lega hér, í Bóksölu stúd­enta. Og síðast en ekki síst fæst hún hér, hjá Sigvaldi Books.

Hina dásam­legu kápu bókar­innar gerði Emilía Erla Ragnarsdóttir.