Dagblaðið Nei.

04.3.2023 ~ 1 mín

Úr banka­hrun­inu haustið 2008 reis mótmæla­hreyf­ing. Reis eða rann – á meðan farveg­ur­inn var í mótun vant­aði fjöl­miðil. Dagblaðið Nei. kom fyrst út sem einblöð­ungur á PDF-sniði, í nokk­urra daga striklotu. Eftir örstutt hlé birt­ist það aftur sem vefmið­ill á slóð­inni this.is/nei. Allt er það nú grafið í einhverjar geymslur, text­inn einhvers staðar finn­an­legur, grafíkin varla. Fyrstu tölu­blöðin, hins vegar, PDF-skjölin, eru óbreytt frá útgáfu, og má halda til haga hér.