Gjá (2010)

01.6.2010 ~ 0 mín

Greina­safnið Gjá kom út árið 2010. Ritstjóri þess var Kári Páll Óskars­son, útgef­andi Nýhil, höfundur Haukur Már. Þar má finna greinar frá fyrsta áratugi aldar­innar, sem áður höfðu birst í öðrum miðlum, frá 2003 til 2010.

Um bókina skrif­aði Kolbeinn Stef­áns­son ritdóm fyrir vefritið Hugsandi.is: „Eitt af því sem að banka­hrunið afhjúp­aði var kreppa íslenskra stjórn­mála. Sú kreppa hefur fengið allnokkra umfjöllun í fjöl­miðlum og þá er oftast vísað í kann­anir á trausti í garð opin­berra stofn­ana. Nálgun Hauks Más á kreppu stjórn­mál­anna er önnur og frum­legri. Hann nálg­ast krepp­una í gegnum tungumálið.“