Einn hjálmkasúi hérna, skotinn á bílastæðinu við Kringluna, uppi á þaki á gömlum Subaru. Tveir dvergkasúar við tjörnina. Þar fuku nokkrir mávar með. Og einn svanur. Emúi úti í hrauni, í grennd við Straumsvík. Kívífuglar, heil hjörð, fjölskylda, hvað þetta kallast, fundust í sameign, í þvottahúsi í blokkarkjallara í Kópavogi. Barn í blokkinni reyndi að bjarga þeim inn til sín. Hugsaðu þér áfallið.
Ónatan Óttar situr í óformlegri yfirheyrslu hjá lögreglunni. Sakarefni eru óljós og margþætt en öll tengjast þau 358 framandi fuglum sem sluppu úr sóttkví og rangla nú um borgarlandið. Sjálfur þvertekur Ónatan fyrir að eiga hlut að máli en ýmsar furður hafa þó hent hann undanfarinn sólarhring, eftir að honum var sagt upp störfum hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Vegna sérstakra aðstæðna hefur lögreglumaðurinn Svanur nógan tíma til að hlusta.
Haukur Már Helgason hefur áður sent frá sér skáldsöguna Svavar Pétur og 20. öldin, ljóðabækur og greinasafnið Gjá, ásamt þýðingum og greinum. Ó – um þegnrétt tegundanna í íslenskri náttúru er launfyndin skáldsaga úr íslenskum samtíma og náttúrusögu.
Ritstjóri: Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir.
(en)
Ó – um þegnrétt tegundanna í íslenskri náttúru was published, in Icelandic, by publisher Forlagið, in April 2019.
Recently unemployed microbiologist Ónatan is considered suspect in the police investigation of an act of vandalism, as hundreds of imported birds of various species were let loose from their pet shop quarantine. While Ónatan sits through an informal but extensive interrogation, police forces are hunting down the invasive species in all nooks and crannies of the city and its suburbs.