Maður verður ekki leiður á vanilluís. Ég meina, hver vill hafa eitthvað pekan-pistasíu-jarðarberja-hindberjabragð í fjögur ár? Skilurðu? Nei, takk. Einu sinni, kannski.
– Katrín í Sáttmálanum.
Einþáttungurinn Sáttmálinn var frumfluttur í beinni útsendingu í skemmtiþætti á sjónvarpsdagskrá Ríkisútvarpsins þann 1. desember 2017. Öllum er kunnugt um að viðtökur við verkinu voru blendnar frá fyrstu stundu.
Starafugl gaf þetta umdeild verk út á bók skömmu síðar. Skrásetjari verksins er hinn sérlundaði blaðamaður og þýðandi Mouche I. Fatï.